11nóvember

miđvikudagurinn 31. október

Hæ hæ

Í dag kenndum við sund í Breiðholtsskóla undir leiðsögn Villu og Þóris sem kenna þar sund.

Fyrsti bekkurinn sem við tókum á móti var 5. bekkur og fengu þau að spreyta sig á baksunds - tímaseðlinum sem við höfðum gert kvöldið áður. Tíminn gekk ekki eins vel og við höfðum vonast til en var þó ekki alveg vonlaus en það kom okkur nokkuð á óvart hvað krakkarnir kunnu lítið og hversu rosalega mikla leiðsögn þau þurftu í hinum auðveldustu æfingum. Það varð til þess að við náðum ekki alveg að klára tímaseðilinn en Villa hafði líka aðeins klikkað því hún mundi ekki að við værum að koma og var búin að lofa frjálsum tíma þannig að við gátum ekki tekið hann alveg af þeim og fengu þau síðustu 10 mínúturnar af tímanum til að leika sér frjálst.

Eftir tímann sagði Villa okkur vel til og lét vita hvað gekk vel og hvað ekki og leiðbeindi okkur með það hvernig við ættum að kenna 2. bekk sem var næstur en við höfðum gert allt of erfiðan tímaseðil fyrir þau.

...og þá kom 2. bekkur. Hann var mjög hress og fjörugur og vorum við smá stund að ná sambandi við hann. Við fórum í leiki með þeim, stórfiskaleik, gullfiskabúrið (sem er eins og tröllin í fjöllunum nema að krakkarnir eru gullfiskar og eiga að ná hinum krökkunum í gullfiskabúrin sín) og enduðum svo tímann á að fá að sjá aðeins hvað þau gátu synt. Það var ekki mikið en flest þeirra náðu að busla sig fá öðrum bakkanum á hinn þvert yfir laugina.

Næst kom 8. bekkur og kenndum við þeim baksund með sérstaka áherslu á armtakið. Þessi bekkur var mjög virkur og þægilegur og hafði mikinn áhuga á að gera rétt og vel þannig að tíminn gekk mjög vel fyrir sig og náðum við að gera mjög margt á þessum stutta tíma - jafnvel meira en við höfðum gert ráð fyrir. Þau fengu líkt og 5. bekkur frjálsan tíma í lokin.

Næst tókum við á móti 1. bekk. Þau voru mjög óstýrilát og áttum við í mestu vandræðum með að fá þau til að hlusta og hlýða en eftirá var okkur sagt að meirihluti bekkjarins hefði einhverjar raskanir eða greiningar á bakinu og kom það okkur ekki mikið á óvart. Við reyndum að nota á þau sama tímaseðil og 2. bekkinn en það gekk mjög illa og varð lítil virkni í tímanum því þessir óþægu skemmdu mikið fyrir hinum. Þegar við sáum hvernig í pottinn var búið ákváðum við að reyna að fara í "stórt skip - lítið skip" því það var auðveldasti leikur sem okkur datt í hug og vonuðumst við því til að hann virkaði! Hann virkaði sem betur fer ágætlega. Við enduðum á því að fá krakkana til að synda þvert yfir laugina líkt og við höfðum gert með 2. bekk en þau voru flest nærri ósynd og hleyptum við þeim uppúr að því loknu. Eftir tímann langaði okkur ekki til að leggja sundkennslu fyrir okkur í framtíðinni.

Síðasti bekkurinn sem við tókum á móti þennan daginn var 4. bekkur. Við kenndum þeim skriðsundsarmtök þar sem Villa leiðbeindi okkur að taka það frekar fyrir en baksunds-tímaseðilinn sem við höfðum gert til að ná fram meiri virkni. Þessi tími gekk bara nokkuð vel en þau fengu eins og hinir frjálsan tíma í lokin. Í þessum bekk var pólsk stelpa sem var að mæta í sund í 1. skipti og var alveg ósynd. Hún talaði enga íslensku en hún fékk flá og æfði sig að sunda meðfram bakkanum í grunnu lauginni en Villa leiðbeindi henni smávægilega á meðan við kenndum restinni af bekknum.

Eftir daginn vorum við alveg úrvinda og vorum ekki par hrifin af fyrstu reynslu okkar sem sundkennarar!

Í heildina litið erum við mjög sátt með vettvangsnámið sem nú er lokið.
11. nóvember 2007 klukkan 16:22
Hjördís Marta og Frosti
Engin athugasemd
11nóvember

ţriđjudagurinn 30. október

Hæ hæ

Í dag fengu 3., 4. og 7. bekkur að spreyta sig á stöðvaþjálfunarhring sem við settum upp fyrir þau þar sem þau áttu unnu með eigin líkamsþyngd. Þau voru 2 og 2 á stöð og unnu í 40 sekúndur í senn þar sem annar vann en hinn fékk að hvíla á meðan og telja fyrir hinn en með því skapaðist smá keppni þeirra á milli að gera betur en hinn aðilinn. Nokkur pör voru þó extra dugleg og unnu í 2x40 sek án hvílda og vorum við mjög ánægð að sjá það.

2. bekkur fékk að fara í leiki í tímanum en þau fóru í skottaleik, frels í pottinn, höfðingjaleik og skot í klefann en þessi tími gekk frekar vel og sáum við mun á því að krakkarnir voru farnir að hlusta betur á okkur og fara betur eftir reglum og vorum við mjög ánægð að sjá það.

Erum bara sátt með daginn.. :)

11. nóvember 2007 klukkan 15:58
Hjördís Marta og Frosti
Engin athugasemd
11nóvember

Mánudagurinn 29. október - alţjóđlegi bangsadagurinn!



Í dag kenndum við handbolta hjá 2., 5., og 6. bekk en aðstoðuðum Gísla við að hreyfiþroskaprófa fyrsta bekk. Dagurinn gekk ágætlega, við kenndum sama handboltatímaseðil og í síðustu viku í grófum dráttum en breyttum að sjálfsögðu áherslunum eftir bekkjum. Það var líka mjög skemmtilegt að fá að hreyfiþroskaprófa krakkana í fyrsta bekk og sjá hvar þau voru stödd, en þau stóðu sig flest mjög vel.

Við komumst að því að til er "Hinn alþjóðlegi bangsdagur" en hann er haldinn hátíðlegur í Fossvogsskóla og átti meira að segja að fella niður íþróttir hjá 1. - 3. bekk í dag til að leyfa þeim að leika sér með bangsana sína, hlusta á bangsasögur á bókasafninu og lita bangsamyndir. Sem betur fer var fallist frá því og fengu þau að koma í íþróttir til okkar með bangsana meðferðis. Sumar stelpurnar áttu þó erfitt með að sleppa böngsunum sínum því þeir yrðu svo einmana að sitja einir upp við rimlana og upphófst smá ströggl að fá þær til að sleppa þeim en allt fór þó vel að lokum.

Eftir skólann fylgdumst við með Gísla kenna krökkunum í íþróttaskóla Víkings en þau koma til hans í íþróttasalinn eftir skóla einu sinni í viku og fá þar að leika sér. Í dag fengu þau að gera ýmsar æfingar með stóru fallhlýfina og þótti þeim það ofsalega gaman.

Að lokum fórum við svo með Gísla í Neðsta-Land en þar er frístundaheimili fyrir krakkana milli 15:30 og 17 eða þar til foreldrarnir sækja þau. Þar var ýmislegt sem krakkarnir gátu gert, s.s. perlað, litað, lesið og leikið sér og var mjög gaman að fá að vera með krökkunum í öðru umhverfi og líka sjá hvernig þau léku sér þegar ekki var verið að stjórnast í þeim.
11. nóvember 2007 klukkan 15:49
Hjördís Marta og Frosti
Engin athugasemd
26október

föstudagur 26. október

Hæ hæ

Í dag byrjuðum við á að taka á móti seinni hópnum úr 7. bekk og fengu þau að spreyta sig á handboltatímaseðlinum líkt og bekkjarsystkin þeirra höfðu gert morguninn áður. Við breyttum honum þó smávægilega til að fá meiri virkni í tímann, styttum tímann sem við tókum í kasta-grípa æfingarnar og höfðum þar með meiri tíma í sendingarleikina. Einnig skiptum við krökkunum upp í fleiri lið (4 í stað 3) þannig að 2 lið hvíldu á meðan hin tvö spiluðu sín á milli og svo var skipt inná eftir 3 mínútur. Það gekk ágætlega þótt svo krakkarnir hafi verið svolítið sofandi í byrjun og skiptingarnar full hægar en það lagaðist allt saman þegar leið á tímann. Krakkarnir spiluðu mjög vel og hefur greinilega farið nokkuð fram í því að spila vörn því leikurinn gekk mun betur og krakkarnir spiluðu rétta vörn í stað þess að hanga hvert í öðru og reyna að hrifsa boltana af hinum eins og þau gerðu í byrjun vikunnar. Við vorum mjög ánægð að sjá það.

Næst var komið að því að kenna íþróttaval fyrir 1. - 3. bekk. 11 krakkar mættu hress til leiks en sökum leiðinlegs veðurs (snjókomu og skítakulda) vorum við inni og fengum að nota tónmenntastofuna fyrir tímann. Þar byrjuðum á að fara í stólaleikinn og fengu þeir sem urðu úr leik að fara til Frosta "íþróttaálfs" (en það heita víst kennararnir sem kenna íþróttavalið) og gera skemmtilegar æfingar. Þegar stólaleiknum var lokið var farið í setudans þar sem sá sem var síðastur að setjast þurfti að gera 5 froskahopp og mátti svo halda áfram. Þar á eftir var farið í myndastyttuleik og fleiri skemmtilega innileiki. Krakkarnir voru flest mjög þæg og áhugasöm en þó voru nokkrir strákar sem þurfti svoltið að hafa fyrir og minna á að sitja og hafa hljóð í sumum leikjunum. Við enduðum á slökun.

26. október 2007 klukkan 23:52
Hjördís Marta og Frosti
Engin athugasemd
26október

fimmtudagur 25. október

Dagurinn hjá okkur byrjaði kl. 8:10 eins og aðra daga og að þessu sinni byrjuðum við að taka á móti 7. bekk. Í dag kenndum við þeim sem ekki höfðu farið í körfubolta sama tímaseðil og við notuðum í körfuboltakennsluna á þriðjudag og miðvikudag en hinum kenndum við handbolta. Tímaseðillinn fyrir 1. bekk var leikjamiðaður.

Við byggðum handboltatímaseðilinn svipað upp og körfuboltatímaseðilinn þannig að krakkarnir könnuðust við sumar æfingarnar og voru því fljót í gang. Í byrjun var þeim kennd rétt tækni í að kasta og grípa og þar á eftir hlupu þau 2 og 2 saman yfir salinn og gáfu á milli á leiðinni og enduðu með því að skjóta á markið. Síðan var farið í sendingaleik þar sem senda átti 10 bolta í röð innan liðs til að fá stig líkt og við höfðum gert með þeim í körfuboltatímanum og endað á því að fara í sendingaleik þar sem skorað var með því að leggja boltann á línu á enda vallarins. Þessi tímaseðill virkaði mjög vel og allir voru vel virkir. Við keyrðum á þessum tímaseðli kennsluna hjá bæði 3. og 7. bekk og gekk hann mjög vel hjá öllum hópunum. Við höfðum smá áhyggjur af því að hann yrði of flókinn fyrir 3. bekk en það var algjör óþarfi því þau stóðu sig eins og hetjur!

Tímaseðillinn hjá 1. bekk var sem áður sagði leikjamiðaður og fengu þau að fara í hinn sívinsæla leik "Frosta frænda" eða Björn frænda eins og þau þekkja hann og vakti hann gríðarlega lukku að vanda. Krakkarnir fengu einnig að fara í stórfiskaleik þar sem þeim var sagt fyrir hverja ferð hvað þau áttu að gera, s.s. köngulóagang, hopp á öðrum fæti o.fl. þar sem allir áttu að koma sér yfir á því formi sem sagt var fyrir. Sá sem var að ná átti líka að vera könguló o.fl. Þar á eftir fórum við í köngulóaskotbolta og enduðum á skot í klefa. Tímaseðilllinn virkaði mjög vel á þessa krakka en þau áttu þó erfitt með að loka munnunum og hlusta og því var erfitt að útskýra fyrir þeim leikina. Hjördísi var þá nóg boðið, lét þau hlaupa 10 hringi í salnum og setjast upp að rimlunum eftir það. Þar hélt hún skammarræðu yfir þeim og þegar þau áttuðu sig á því að þau höfðu misst af heilum leik vegna þess að þau gáfu ekki hljóð og þurftu að hlaupa í staðinn sáu þau að sér og gáfu gott hljóð eftir það þannig að hægt var að halda áfram með tímann.

Þegar upp er staðið erum við mjög ánægð með daginn, báðir tímaseðlarnir virkuðu mjög vel og jafnvel betur en við bjuggumst við. Einnig var svolítið skemmtilegt að fá að takast á við 1. bekkinn og þurfa að hafa svolítið fyrir hlutunum.

26. október 2007 klukkan 23:36
Hjördís Marta og Frosti
Engin athugasemd
24október

miđvikudagur 24. október

Hæ hæ

Í dag kenndum við 3., 5., 6. og 7. bekk. Í öllum tímunum var þemað körfubolti með áherslu á sendingar. Bekkirnir höfðu ekki farið í körfubolta það sem af var vetri og þar sem fáir eða engir kunnu almennilega reglur eða spil í körfubolta byrjuðum við nærri alveg frá byrjun.

 Við æfðum krakkana í að gefa á milli, skjóta á körfur og enduðum í sendingaleikjum þar sem stig voru skoruð með því að ná annars vegar 10 sendingum í röð innan liðs og hins vegar með því að hitta boltanum í spjaldið eða körfuna. Sérhæfingin var mismunandi mikil eftir bekkjum, 6. og 7. bekkur spiluðu eftir nokkuð nákvæmum reglum, s.s. skrefi, útaf og villum og lærðu þau stjörnuskref og hvernig skyldi spila vörn. 3. og 5. bekkur spiluðu eftir auðveldari reglum, fengu að taka 2 skref með boltann og tekið var mildara á villum og boltinn var aldrei útaf.

Dagurinn gekk nokkuð  vel en þó komu upp smávægileg agavandamál. Einn strákur var rekinn úr tíma fyrir ljótt orðbragð og fékk hann að bíða inni í klefa þar til tíminn var búinn en þá var rætt við hann, við vonum við að hann sjái að sér og að þetta komi ekki fyrir aftur. Tveimur strákum lenti einnig saman eftir leik í búningsklefanum og kostaði það grát og gnístan tanna en eftir tiltal báðu þeir hvorn annan afsökunar, tókust í hendur og var því máli þar með lokið.

Eftir kennsluna í Fossvogsskóla fórum við í sundlaugina við Breiðholtsskóla og fylgdumst stuttlega með kennslu og spjölluðum við Þóri sundkennara sem tekur á móti okkur í kennslu í næstu viku.

Í tilefni af kvenréttindadeginum ákváðum við að hafa spakmæli dagsins:

,,Kalt er kýrlaust bú en sveltur sauðlaust.´´

Njótið vel....




24. október 2007 klukkan 22:04
Hjördís Marta og Frosti
Engin athugasemd
23október

ţriđjudagur 23. október

Sælinú...

Í dag byrjuðum við að kenna af fullum krafti og tókum á móti 2., 3., 4. og 7. bekk. Nemendurnir voru flestir jákvæðir og áhugasamir en þó er nú misjafn sauður í mörgu fé eins og gamalt máltæki segir, en engin vandamál komu þó upp.

Við skiptumst á að kenna hópunum og gekk það bara nokkuð vel þótt hóparnir væru mis virkir. Vettvangskennarinn var duglegur að segja okikur til eftir tímana en leyfði okkur þó alveg að stjórna. Hann var ánægður með framgang dagsins og hafði orð á því að hann væri sjálfur að læra helling á því að fylgjast með okkur - þannig að allir græða.

Við vorum bara mjög ánægð með frammistöðu dagsins þótt alltaf megi bæta eitthvað.

Eftir kennsluna var kennarafundur sem við fórum á. Þar var verið að kynna ferð sem nokkrir kennarar höfðu farið á vegum Comeniusar-samstarfsins til Póllands. Sýndar voru myndir úr ferðinni, kennararnir sögðu ferðasöguna og buðu upp á pólskt sælgæti. Þetta var hinn ágætasti fundur og fengum við þar tækifæri til að sýna okkur og sjá aðra.



Frosti samdi þetta ljóð í tilefni dagsins:

í íþróttum er alltaf fjör
þar er gott að vera
þegar maður fær sér smjör
og fer svo hrút að skera... eða eins og segir í Laxdælu: Guð sé oss næstur

Alltílætakkbæjjjjj
23. október 2007 klukkan 23:51
Hjördís Marta og Frosti
Engin athugasemd
23október

mánudagur 22. okt

Hæ hæ..

Í dag mættum við kl. 8 og fylgdumst með kennslu hjá 1., 2., 5. og 6 bekk. Í dag er fyrsti tíminn sem kennarinn okkar kennir þeim inni þannig að krakkarnir eru enn að aðlagast nýjum reglum. Kennt er mánudaga til fimmtudaga frá 8-14 og föstudaga frá 8-13:30 með hléum.

Íþróttaaðstaðan í skólanum er þokkaleg. Íþróttasalurinn er hluti af skólabyggingunni en hann er frekar lítill, eða einn blakvöllur að stærð með rimlum, köðlum, 2 körfum og 2 handboltamörkum. Áhöld eru af skornum skammti en þó er eflaust hægt að gera fjölmargt með réttu hugarfari og ýmindunarafli.
Kennarinn kenndi eftir 2 tímaseðlum en báðir voru leikjamiðaðir. 1. og 2. bekkur fengu að leika sér nærri allan tímann en 5. og 6. bekkur voru styttra í leikjum og lærðu tækni í þrekæfingum, s.s. kviðæfingum, bakfettum og armbeygjum sem þau framkvæmdu síðan.

Stefnan er að byrja að kenna á morgun.
23. október 2007 klukkan 23:31
Hjördís Marta og Frosti
Engin athugasemd
23október

fimmtudagur 18. og föstudagur 19. okt

Stefnan var að byrja strax af fullum krafti og horfa á fimmtudag og föstudag og byrja að kenna á mánudag en kennarinn okkar er með flensu þannig að við höfum ekkert gert ennþá. Vonum að honum batni sem fyrst...

Kv. Hjördís og Frosti
23. október 2007 klukkan 23:10
Hjördís Marta og Frosti
Engin athugasemd

Ađalvalmynd

Klukkan

Auglýsing

Innskráningar kubbur